Inga, Linda, Lilja
28.09.2007 18:20:49 / linda

DJ, spin that shit!

Já bylting segiði? ég ætla allavega að koma með föstudagsblogg :)

Vikan er búin að vera fljót að líða og dagarnir eru yfirleitt mjög svipaðir hjá mér! vinna, horfa á glæstar & nágranna, borða kvöldmat og hangin with my gang híhíhí.. :* finnst stundum ótrúlega leiðinlegt að vera ekki í skóla en er þó fegin yfir því að þurfa ekki að liggja yfir heimanámi næstu klukkutímana þegar ég kem heim! Svo fer að koma að útborgun og ég er held ég búin að ákveða að kaupa allt of mikið haha, kannski kaupi ég mér nýtt rúm og fer líklegast suður helgina 12-14 okt og ætla skoo að versla!! :)

Ég dundaði mér við það í gærkvöldi að skoða gamlar myndir í tölvunni frammi og rifjaði upp góðar stundir hehe! flest úr 9unda og 10unda bekk, þegar við stelpurnar vorum aaalltaf að gista saman, af skólaböllum og árshátíðum, "flippum" eftir skóla haha og svo má til gamans geta að ég var dökkhærð á þessum tíma.. oh my.

Núna er helgin framundan og er í fríi á morgun og fer ekki að vinna fyrr en 12 á sunnudag :) svo ég ætla örugglega að fá mér eitthvað í kvöld og líka á morgun ;) hvernig leggst það í ykkur..? svo má náttla ekki gleyma að hann alexander minn fer bráðum að verða eins árs og verður haldið upp á það á morgun :)

gaman í baði hjá ömmu og afa :)
sætastur *svo stolt af því að vera mömmusystir :)*
Jæja köllum þetta gott í dag og þið megið búast við myndum eftir helgi!! ;)
KV. BJÖGGA - sem saknar benidorm :(

» 8 hafa sagt sína skoðun

19.09.2007 14:37:04 / inga

Bylting í bloggheiminum

Haldiði að maður sé ekki bara byrjaður að blogga.. ja, á "fullu", það er víst ekki í tísku að blogga, bara töff að vera með myspace, hehe. En já annars er ég byrjuð í SKÓLANUM, loksins, var farin að hlakka til um leið og vorönnin var búin. Annars er allt öðruvísi heldur en það var, Linda, Heiða og Hildur eru ekki í skólanum núna en ég hef þá ennþá Höllu og Tinnu. Mér líst samt mjög vel á bekkinn en maður á eftir að finna sig aðeins þegar líður á dagana:lol: Já Svo erum við búnar að vera svakalega duglegar að setja inn myndir! Eða hún Linda á heiðurinn að því:) Ég verð ekki að vinna mikið í vetur en þó eitthvað um helgar, sem er fínt! Að lokum langar mig mjög að deila með ykkur nokkrum myndum frá nýlegum, góðum minningum:)


Á Benidorm, besta minning sem ég mun eiga lengi lengi :)

Orðin hress á leiðinni á Jokers alveg örugglega hehe ;)

Voða elskulegar

Sætu mínar á laugardaginn

Og svo ein síðan í 1. bekk, á leiðinni í busapartý hehe:D

 

En segi þetta gott í bili, stay "tuned" hoho, KV INGA 

 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

03.09.2007 11:29:46 / inga

Góðan daginn!

Ég vil bara byrja á því að þakka öllum fyrir yndislega utanlandsferð, þetta er bókað eitthvað sem mig langar að upplifa aftur!

Ég er búin að hafa það mjög gott síðan ég kom heim, búin að vera vinna mikið en það er bara gott að hafa mikið að gera. Í þessari viku vinn ég slatta en það er samt bara frá tólf til sex sem er mjög stutt fyrir mér þar sem ég hef verið á tólf tíma vöktum í allt sumar. Er reyndar í fríi á morgun. Í næstu viku vinn ég tvo daga og svo byrjar bara skólinn! Ég hlakka bara mjög mikið til að byrja í nýjum bekk og svona, ég veit um nokkra og mér líst bara mjög vel á þetta allt saman.

Í þessari viku erum við Hákon ein heima og pössum hundinn, var að koma úr smá göngu með hann bara rétt áðan. Svo verður maður nú að reyna að sjá um húsverkin aðeins, maður er svo myndarlegur!;)

En allavega ég þarf að þjóta, verum duglegri að blogga. Svo koma myndir frá helginni innan skamms!!:klikk: 


» 6 hafa sagt sína skoðun

28.08.2007 15:42:55 / linda

MYNDIR :)

Vitiði um annan eins dugnað? Ég er búin að setja inn allar 257 myndirnar frá benidorm!! :) en þær eru hérna neðst undir Myndir 2007. Ég nenni ekki að koma með alveg ferðasöguna en þetta var alveg ógeðslega skemmtilegt í alla staði, fannst mér allavega :).

Allavega var mikið djammað og sofið reyndar líka en ekki legið nógu mikið í sólbaði, ég er frekar ósátt að koma með svona lítinn lit heim :( Ég held allavega að María og Pálmi hafi unnið í taninu og djamminu - svindl.

Núna er sumarið eiginlega alveg búið og VMA byrjaður, ég er semsagt ekki að fara halda áfram í MA og ætla að vinna fram að áramótum á Bláu könnuni ;) smá vesen á mér og mínum skólamálum en það verður bara fínt að eignast smá pening og ég ætla að reyna gera sem best úr þessum vetri!

En ég ætla að segja þetta gott í bili og nýta tækifærið og þakka öllum sem voru með mér úti fyrir frábæra ferð :D ;*

         
Megnuseen að skammta Megnuseninn
.. drekka hann líka auðvitað
:D
 sætust á flugvellinum ;)
Tvíbbamynd! eða svona næstum því...
;*
Arna og María elskur ;)
Berta og Andrea gellur :)
Yndislegust

» 8 hafa sagt sína skoðun

07.08.2007 19:00:03 / lilja

!!

lilja hér örugglega fyrsta bloggið mitt i marga mánuði...ætlaði bara að segja að á morgun get ég sagt við erum að fara á morgun:D

» 3 hafa sagt sína skoðun

12.07.2007 09:07:09 / inga

28 dagar í Benidorm!

Ómægad, akkurat mánuður síðan það var bloggað. Sem er ekkert smá slæmt. En eins og gefa má í skyn þá erum við að fara til Benidorm eftir 28 daga!! Tíminn er búinn að líða alltof hratt í sumar en mér finnst það bara frábært vegna þess að ég hlakka eiginlega bara til að byrja í skólanum aftur.

En já er semsagt að vinna í dag 12-12, 7:30 - 19 á morgun og svo frí á laugardag og sunnudag. Ætla því að gera eitthvað skemmtilegt með bara þeim sem vilja! Hverjir eru game í smá gaman?:)

Ég veit svosem ekki hvað ég get skrifað meir, allt fínt að frétta. Ætla að skella mér austur í næstu viku í 1-2 daga og hitta Kollu og Tinnu. Ekkert smá góð ég að koma til ykkar;)

Svo er það hún Eyrún mín sem ætlar að halda smá kveðjudinner fyrir okkur vegna þess að 7/8 ágúst er hún að fara til Bandaríkjanna í ár og kemur ekki aftur fyrr en á næsta ári og ég á eftir að sakna hennar alveg gífurlega, en frábær lífsreysla hinsvegar held ég:)

.. En ég er hætt að blaðra og ætla að leggja mig smá áður en ég fer í vinnunna. Blesssss.

KV Inga, sem bloggar ALLTAF :$ 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.06.2007 15:07:29 / inga

1. árið í MA búið!

Eruði að trúa mér? Ég er svona ennþá að meðtaka þetta. Er búin að ná öllum prófunum og er bara mjög svo sátt! Ég er svo að fara á málabraut í öðrum bekk og vonandi verður það bara gaman :)

Strax eftir prófin, sem voru búin 6. júní keyrðum við Linda og Hildur suður til Reykjavíkur, það gekk svona upp og ofan, bæði leiðin þangað og svo líka inni í borginni sjálfri þar sem ég tók að mér allan akstur þar. Við skruppum í verslunarferð, borðuðum góðan mat með Höllu systur og hittum Maaaríu, víí svo gaman. Við komum heim aftur á föstudagskvöldið.

Á laugardaginn útskrifaðist Halla systir okkar og er nú formlega orðinn grunnskólakennari. Það voru kökur og góðgæti hjá okkur þann dag og það komu nokkrir gestir já... Kvöldið tók við og ég, Linda og Lilja skelltum okkur í Bónus, versluðum grill og kjöt, útilegudiska og hnífapör og syyykurpúða. Svo skelltum við okkur í Vaglaskóg og hittum nokkra fleiri krakka sem voru í síðuskóla. Það var ekkert smá gaman, vorum á pínu afskekktu stæði þar sem auk okkar voru bara tveir frakkar á ferðalagi. Já maður gat spjallað, það er sko alveg hægt að bjarga ser í frönskunni:D

Svo er það bara vinnan sem tekur við á morgun, er að fara vinna á Bláu könnunni í sumar og svo annan hvern laugardag í Hrísalundi, þannig ég verð að vinna allar helgar. Allavega til að byrja með, við skulum sjá til hvort ég þoli það.

Vonandi kemur svo blogg bara fljótlega og vá, það er komin röðin að Lilju, ef hún kemst einhverntíman heim til sín fyrir vinnu;) 


» 6 hafa sagt sína skoðun

16.05.2007 12:39:52 / linda

BLOGG BLOGG!

Ég er búin að setja inn myndirnar úr afmælinu stelpur mínar! þær eru misgóðar og við vorum allar í misgóðu ástandi þetta kvöldið. En annars ætla ég að hafa þetta frekar stutt þetta skiptið, það er mikið framundan og tíminn flýgur gjörsamlega frá manni. Prófin byrja á föstudaginn í næstu viku og ég ætla mér að standa mig vel og læra mikið! (sjáum til hvort ég standi við það).

Ég hlakka svo óendanlega til að fá sumarið!! ég verð í kexó aftur þetta sumarið og verð að vinna alla virka daga og í fríi um helgar, ljúft eða hvað?? Svo verður skellt sér til Spánar 9-23 ágúst og það verður alveg bókað hápunktur sumarsins (eða ég vona það allavega;)).

Seinasta prófið mitt verður 6. júní og þá ætlum við systur líklegast að skella okkur suður í 2 daga (það er að segja ef við fáum gistingu hjá Höllu.. :)) og taka okkur smá frí áður en við byrjum svo að vinna.

Ég ætla ekki að hafa þetta meira í bili, comment væru vel þegin frá ykkur.

ein af mér og Ingu ;)
og ein af Alexander líka, af því að hann er svolítið sætur. :*

 

  


» 12 hafa sagt sína skoðun

04.05.2007 19:21:03 / inga

Tíminn flýgur..

Já það er frekar skrítið hvað maður er orðin stór stelpa, er búin að vera með bílpróf í heilar 2 vikur. Það er ekki búið að koma neitt fyrir síðan (sjö, níu, þrettán) - en ætli það verði ekki að koma fyrir, fyrr eða síðar, hvort sem maður er í rétti eða órétti?

Allavega er búið að vera mjög mikið að gera í skólanum, síðustu vikurnar á önninni að bresta á og þá fatta allt í einu allir: HA, já við eigum eftir að láta krakkana gera þetta, þetta, þetta og þetta... hmmmm.... samt búið að ganga bara ágætlega:)

Svo byrja prófin hjá okkur í MA 25. maí, eða allavega hjá fyrsta bekk, erum svo búin 6. júní. Þá er spurningin hvort maður taki sér örfáa daga í frí eða svo og svo byrja ég bara að vinna í kexsmiðjunni aftur. Ég verð samt annan hvorn laugardag í Hrísó. Það verður nóg að gera hjá mér í sumar. Verst með þetta veður, það var farið að gera manni ýmsar vonir þegar maður var farinn að geta sólað sig í garðinum en svo kom bara rigning aftur! skemmtilegt...

En já, ætli þetta sé ekki komið gott hjá mér, svo er komið að einhverjum öðrum að blogga næst, hvernig væri það stelpur mínar?

Góða helgi;) 


» 8 hafa sagt sína skoðun

17.04.2007 19:38:26 / inga

ooohhh já langflottastar...

Já! Ég og Linda erum búnar að ná bílprófinu, eruði að trúa þessu hehe? Eigum afæli á föstudaginn og þá getum við farið að keyra elskulega litla sæta bílinn okkar - langflottastar8)

En Já vildi bara koma þessu á framfæri - góðar stundir 


» 13 hafa sagt sína skoðun

04.04.2007 12:47:20 / inga

Það sem hefur á daga okkar drifið

Skólinn Gengur ágætlega, í páskafríinu þarf ég að klára að lesa 3 bækur (á íslensku, dönsku og á ensku). með því er ég búin að lesa heila ökubók. Þess má einnig geta til að ég náði bóklega bílprófinu í gær! var aðeins með 1 villu í heildina - Linda náði líka8)

Vinnan Er ágæt - vinn ekki mjög mikið í páskafríinu (ekki meira en vanalega allavega...) var að vinna í gær og svo aftur í dag, verð svo að vinna um helgina.

 

Páskafríið Ha? hvaða páskafrí? ég er ekki búin að vera vör við það, ég var að læra um helgina, tók bóklega í gær og var að vinna svo, í dag er ég að fara í ökutíma og beint að vinna. Sem minnir mig á það að ég er að fara þrífa í herberginu mínu. Reyndar verður smá djamm hjá mér í kvöld, er að fara í afmæli til elsku tvíbbanna minna, Eyrúnar og Völu.. Þær eiga m.a.s afmæli í dag til hamingju elskur! Svo á ég afmæli eftir aðeins tvær vikur;)

 

Já elskurnar það virðist vera að það sé einhver þráhyggja að segja fólki á netinu frá plönum dagsins - hehe. Svo er bara málið að kvitta hér nokkur orð til að sýna mér smá áhuga og væntumþykju. Gleðilega páska og gangið hægt inn um gleðinnar dyr. 


» 7 hafa sagt sína skoðun

06.03.2007 22:14:21 / linda

:)

Já ég ætla að blogga, samt bara svona punkta...

  •  Smá niðurtalning: 45 dagar þangað til ég verð 17, við systur erum búnar að splæsa í bíl! Verðum alveg megaflottar á svarta polonum;)
  • Mér gengur því miður ekki vel að keyra bílinn minn :( en ætli þetta komi ekki með æfingunni! 
  • ... Hins vegar eru miklu miklu fleiri dagar í 18 ára afmælið mitt.
  • Ég ÆTLA að djamma næstu helgi, eitthvað vit í því?
  • Ég er komin með stóra herbergið.. loksins! Er alveg að missa mig, langar alltaf að kaupa mér meira og meira inn í það :D
  • Ég er ekki alveg nógu sátt við veturinn, gerir mig eilítið bitra. Væri alls ekki á móti að vera sleikja sólina... og já, einhversstaðar annars staðar en á Íslandi.
  • Alexander Már kemur til okkar annað kvöld og verður þangað til eftir helgi þar sem foreldrar hans ákváðu að skella sér til London (væri heldur alls ekkert á móti því að vera á leiðinni þangað).

Jæja mér finnst þetta meira en nóg í bili.. comment myndi gleðja mig :)

 

Linda 


» 14 hafa sagt sína skoðun

21.02.2007 15:32:56 / inga

Góðan dag

Hvað er eiginlega að frétta af öllum? Jæja, allavega ekki það mikið af mér. Ég er jú, búin að fá flensuna skemmtilegu og þar af leiðandi var ég þar síðustu helgi veik heima hjá mér og gerði ekki mjög mikið. Um síðustu helgi gerði ég ekki svo mikið en fór til Kristrúnar á laugardaginn sem var bara mjög fínt, en var ekki að drekka:)

 

Síðustu daga er ég búin að vera með aðra flensu sem kallast kvef, ég veit ekki hvort þið hafið heyrt um það:$

 

Gottt fólk! ég fæ bílpróf eftir ca. 2 mánuði, get ekki beðið!:klikk:  er búið að ganga svona "ágætlega" í tímum hingað til og ég fæ æfingarleyfið á föstudaginn, það verður nú gaman.

 

Í daag er ég að fara vinna klukkan 4-7, þegar ég kem heim þarf ég endilega að koma mér út að hlaupa eða eitthvað, þarf svo að fara í sturtu og læra = dagurinn búinn!  Talandi um að fara út að hlaupa - maður ætlaði nú að byrja í voða átaki einhverntíman og fór alveg einu sinni út að hlaupa! maður er svo duglegur....;)

 

En jæja, þarf að fá mér að borða og dríbbsa mig í vinnuna:) 


» 7 hafa sagt sína skoðun

11.02.2007 23:16:57 / linda

...

Stelpur, við erum nú frekar slappar í blogginu. Aldrei neitt að blogga um kannski?

Lítið að frétta af mér, ég er byrjuð í ökukennslu og það gengur svona ágætlega bara ;) Skólinn gengur ágætlega líka, ætla mér að vera duglegri á þessari önn heldur en á þeirri fyrri (við skulum sjá hvernig það gengur).

Í gær fór ég með Hildi í bústaðinn. Það var mjög notalegt hjá okkur, hámuðum í okkur sætindi og fórum á fjórhjólin :) Spurning um að halda sig á veginum næst, greyið tréð :/.

Hérna fyrir neðan er blogg sem ég bloggaði fyrir 3 árum eða svo og hljómar það svona:

eg gerði ekki mikið i dag... en adda frænka min kom i heimsokn til min:D... en i gær var eg með hildi en siðan kom lilja til min i KRAFT galla og fleira skemmtilegu... hey for ekki tinna heim til sina lika að klæða sig upp eikkað.... jamm... hun for t.d. i Zorro skikkju og skátapeysu...:S:S hvernig dettur ykkur etta i hug stelpur minar...þið eruð snillingar!!;) hehe... en etta fer að vera ágætt... c ya bara;) *knus knus*

Ég vil ekki gefa upp slóðina á þessu hehehe, en já, það mætti segja að það væru svolítið breyttir tímar. ;)

Hvaða mega sæta pía er þetta eiginlega??
Og svo ein af mér og Ingu í okkar fínasta.

» 7 hafa sagt sína skoðun

26.01.2007 12:24:22 / inga

allt er frábært

Góðan daginn! ákvað að koma með eitt blogg svona af tilefni dagsins.
Í dag:
-fékk ég síðstu einkunnina mína og ég komst að því að ég hef náð öllu;)
-er föstudagur, sem þýðir helgi
-vaknaði ég kl hálf tíu (sem ég er reyndar búin að gera síðan ég byrjaði í fríi því hákon fer i skólann kl 10, dugleg)
-ætla ég að fara í sund með Elfu þegar hún er búin í skólanum, ómæ hún á sko bíl8)

Í kvöld:
-veit ég ekki hvað ég geri! langar að gera eitthvað skemmtilegt...

Um helgina:
-heldur Jónatan upp á 4ára afmælið sitt, ekkert smá flottur þessi elska
-ÆTLA ég að gera eitthvað skemmtilegt (og standa við það hehehe);)

Blesssssssss sjáumst vonandi um helgina:D


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3